Er ekki komin tími á smá blogg

Ætla að hrista af mér bloggletina í smá stund

Allt ljómandi gott að frétta. Ég er búin að vera í fríi frá 5 júlí, bara nice og svo byrjar skólinn á föstudag! Ég er mjög spennt fyrir skólanum, finnst þetta bara gaman! Ótrúlega skrítið að vera hætt að vinna. Er búin að fara í nokkur útköll og soldið skrítið að vera ekki lengur hluti af starfsfólkinu en samt æði að vera í fríi allar helgar, fríi á ljósanótt, fríi öll jólin og geta alltaf farið með Júlíus á leikskólan og sótt hann alla daga
Sumarfríið er búið að vera æði!! Búin að gera svo mikið! Fór til marmaris í 2 vikur, fór í útilegu í úthlíð með Áslaugu systir og family um verslunarmannahelgina, þau stoppuðu líka hjá okkur í nokkra daga, fór norður á Sauðarkrók og Hofsós að heimsækja Bjarka og family, fór í Borgarnes og fullt meir

Ég er búin að vera með Júlíus á sundnámskeiði síðustu vikur, hann er ekkert smá duglegur. Farinn að kafa mikið, læra bringusund, skriðsund og baksund! Hann kláraði síðasta tíman í dag þannig að nú verðum við Gunni að halda honum við

Hann byrjar svo í íþróttaskólanum á laugardaginn, hann er mjög spenntur fyrir því. Hann ætlar svo að vera á fótboltaæfingum í vetur, hann ætlar sko að vera fótboltasnillingur þegar hann verður stór

Ég er að kenna honum stafina, alltaf áður en hann fer að sofa þá förum við yfir nokkra stafi og skrifum soldið. Hann skrifar nafnið sitt voða krúttulegt

Hann er algjör gullmoli

Hann hefur greinilega erft keppnisskapið úr föðurættinni, ótrúlegt keppnisskap sem drengurinn er með! Hann er alltaf í kappi og er alltaf fyrstur! og ef hann tapar þá verður hann svo geðveikt sár að það er bara ótrúlegt... hehe og alltaf vorkenni ég honum og leyfi honum að vinna

....ææjjj til hvers eru mömmur

Á morgun ætla ég að sækja stundatöfluna mína, reyna að kaupa sem flestar bækur og fer í útkall eftir hádegi. Á fimmtudag ætla ég að reyna að klára að kaupa fyrir skólann og svo á föstudag er það bara skóli

Læt þetta nægja í bili

Kveðja Halldóra Ríkey skólastelpa